Wednesday, November 5, 2008

Magaóður

Ég skal segja ykkur það að magar eru eitt veimiltítulegasta og eymingjalegasta fyrirbæri sem mannkynið hefur þróað með sér. Af hverju erum við ekki löngu komin með innbyggða fislétta nanó-stálgrind þarna inn í staðinn fyrir þessar aumu frumur sem þykjast vera eitthvað? Og ofurgúmmíslöngur með sjálfverkandi hreinsibúnaði í stað draslþarma.

Einhver ætti klárlega að kanna málið.

Áa bitra sem missti af Nepalsrútunni.

4 comments:

Unknown said...

greyið mitt gráa, mín litla vesalings áa;)...já magar eru merkileg fyrirbæri. Með tei sem inniheldur fennel;).......Hafðu það sem allra best litla frænka
kv.Sigríður á Heiðinni

Unknown said...

Magar eru nú samt ótrúlegir á sinn hátt. Þeir geta tildæmis ferðast á hljóðhraða, sbr:

sto-mach 2 = tvöfaldur hljóðhraði

Láttu þér batna á tvöföldum hljóðhraða Áa mín!

Anonymous said...

Hljómar eins og áa hafi verið skilin ein eftir á klósettinu á rútustöðinni í indlandi

sukie said...

já, þetta hljómar að minnsta kosti ekki vel... láttu þér batna! og hugsið vel um hvort annað börnin mín :)